{"id":13811,"date":"2026-05-27T15:20:28","date_gmt":"2026-05-27T15:20:28","guid":{"rendered":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/?p=13811"},"modified":"2026-05-27T15:27:11","modified_gmt":"2026-05-27T15:27:11","slug":"knattspyrnu-kempur-og-tryggir-tyrarar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/knattspyrnu-kempur-og-tryggir-tyrarar\/","title":{"rendered":"Moli m\u00e1na\u00f0arins- Knattspyrnu kempur og tryggir T\u00fdrarar"},"content":{"rendered":"\n<p><\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd\u00fer\u00f3ttir hafa veri\u00f0 Eyjam\u00f6nnum hugleiknar \u00ed gegnum \u00e1rin og hefur f\u00f3tboltinn veri\u00f0 \u00fear fremstur \u00ed flokki. \u00c1\u00f0ur en \u00cdBV kom til s\u00f6gunnar \u00fe\u00e1 voru helstu \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9l\u00f6g Vestmananeyja \u00feau \u00de\u00f3r og T\u00fdr. \u00c1hugaver\u00f0ur r\u00edgur mynda\u00f0ist \u00e1 milli \u00feessara tveggja \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9laga sem setti skemmtilegan bl\u00e6 \u00e1 b\u00e6jarl\u00edfi\u00f0. \u00dear sem knattspyrnuf\u00e9lagi\u00f0 T\u00fdr var stofna\u00f0 1. Ma\u00ed 1921 \u00fe\u00e1 \u00feykir vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 g\u00e6gjast a\u00f0eins \u00ed s\u00f6gu \u00feessa merkilega f\u00e9lags.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var fagur vordagur&nbsp; og gr\u00f3\u00f0ur ilmur \u00ed lofti \u00feegar knattspyrnuf\u00e9lagi\u00f0 T\u00fdr var stofna\u00f0 \u00feann 1. Ma\u00ed 1921 a\u00f0 s\u00f6gn J\u00f3hanns Gunnars \u00d3lafssonar eins af stofnendum f\u00e9lagsins. Voru allir stofnendurnir ungir a\u00f0 \u00e1rum, \u00ed kringum 16-18 \u00e1ra, en helsta \u00e1st\u00e6\u00f0a fyrir stofnun f\u00e9lagsins var a\u00f0 \u00feeir ungu leikmenn sem h\u00f6f\u00f0u leiki\u00f0 me\u00f0 Knattspyrnuf\u00e9lagi Vestmannaeyja (KV) og \u00cd\u00fer\u00f3ttaf\u00e9laginu \u00de\u00f3r voru \u00f3s\u00e1ttir me\u00f0 hvernig komi\u00f0 var fram vi\u00f0 \u00fe\u00e1 vi\u00f0 \u00e6fingar. Samkv\u00e6mt fr\u00e1s\u00f6gn P\u00e1ls Scheving, einum af stofnendum f\u00e9lagsins \u00fe\u00e1 var peninga &nbsp;hall\u00e6ri hj\u00e1 KV og \u00de\u00f3r. Yngri leikm\u00f6nnum var s\u00fdndur l\u00edtill \u00e1hugi og fengu \u00feeir bolta til notkunar eftir hentisemi. \u00deegar \u00feeir eldri svo m\u00e6ttu \u00e1 \u00e6fingar, \u00fe\u00e1 voru boltarnir teknir af \u00feeim yngri, svo \u00feeir eldri g\u00e6tu \u00e6ft. Var\u00f0 \u00feetta til \u00feess a\u00f0 ungu leikmennirnir fengu sig full sadda af \u00feessari framkomu, fj\u00e1rfestu \u00ed s\u00fdnum eigin boltum og h\u00f6nnu\u00f0u og saumu\u00f0u sinn eigin f\u00e1na, br\u00fann bolti \u00e1 d\u00f6kkbl\u00e1um grunni (einnig er tala\u00f0 um svartan hring \u00e1 gulum grunni sem fyrsta f\u00e1na f\u00e9lagsins). \u00c1 sama t\u00edma var reynt a\u00f0 koma J\u00f3hanni Gunnari \u00d3lafssyni a\u00f0 sem formanni KV, en \u00fea\u00f0 t\u00f3kst ekki til \u00fe\u00f3 munurinn \u00e1 kosningum hafi veri\u00f0 l\u00edtill. Fyrsti fundur T\u00fds f\u00f3r fram \u00fati \u00ed Ofanleitishrauni og voru stofnme\u00f0limir 45 talsins, flestir \u00e1 bilinu 16-18 \u00e1ra. Fleiri fundir fylgdu \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 og var kosi\u00f0 til br\u00e1\u00f0abirg\u00f0astj\u00f3rnar og sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar h\u00f3fust fyrstu kappleikir f\u00e9lagsins. Fyrsti leikur li\u00f0sins f\u00f3r fram 17. J\u00fan\u00ed 1921 \u00e1 m\u00f3ti sameinu\u00f0u li\u00f0i KV og \u00de\u00f3rs, enda\u00f0i s\u00e1 leikur me\u00f0 tapi T\u00fds. \u00c1 \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0 sama \u00e1r, \u00e1ttust li\u00f0in vi\u00f0 aftur og haf\u00f0i T\u00fdr \u00fe\u00e1 sigurinn. \u00c6fingar h\u00f3fust af kappi 30. Apr\u00edl 1922 og lauk \u00feeim 17. September sama \u00e1r. Kom fram \u00ed fundarb\u00f3k f\u00e9lagsins a\u00f0 ekki hafi veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 hafa eins margar \u00e6fingar og menn vildu s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 veri\u00f0 var a\u00f0 byggja knattspyrnuv\u00f6ll. Tveir leikir \u00e1 milli T\u00fds og \u00de\u00f3rs f\u00f3ru fram \u00e1 \u00feessu \u00e1ri, s\u00e1 fyrri \u00feann 17. J\u00fan\u00ed og b\u00e1ru T\u00fdrarar sigur \u00far b\u00fdtum &nbsp;1:0, en t\u00f6pu\u00f0u s\u00ed\u00f0ari vi\u00f0ureign sinni vi\u00f0 \u00de\u00f3r seinnihluta septembers 4:0, en \u00fe\u00e1 var \u00ed fyrsta sinn keppt um ver\u00f0launagrip. G\u00edsli J. Johnsen, kaupma\u00f0ur haf\u00f0i \u00fe\u00e1 teki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 gefa \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9l\u00f6gunum bikar til a\u00f0 keppa um. N\u00e6stu \u00e1ru skiptust li\u00f0an \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sigra ver\u00f0launagripinn. Me\u00f0al stofnme\u00f0lima T\u00fds m\u00e1 nefna J\u00f3hann Gunnar \u00d3lafsson, Fri\u00f0rik Jesson, P\u00e1l S. Scheving, Ben\u00f3ny Fri\u00f0riksson (Binni \u00ed Gr\u00f6f), Run\u00f3lfur J\u00f3hannson, Engilbert Sigur\u00f0sson og Sigur\u00f0ur \u00d3lason.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0in var lengi vel \u00ed h\u00f6ndum \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9laganna T\u00fds og \u00de\u00f3rs, en fr\u00e1 1927 \u00e1 skiptu \u00feau henni \u00e1 milli s\u00edn og s\u00e1 T\u00fdr um h\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00fea\u00f0 \u00e1ri\u00f0 sem og anna\u00f0 hvert \u00e1r. Miki\u00f0 var lagt \u00ed undirb\u00faining h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar og voru t\u00fdrarar heppnir a\u00f0 eiga marga velunnara sem sinntu \u00feeim undirb\u00faningi og uppsetningu \u00ed sj\u00e1lfbo\u00f0astarfi. &nbsp;\u00c1ri\u00f0 1929 er fyrst geti\u00f0 um brennu \u00e1 Fj\u00f3sakletti, en \u00e1\u00f0ur h\u00f6f\u00f0u \u00fear veri\u00f0 sm\u00e6rri var\u00f0eldar. \u00c1 \u00feessum t\u00edma var \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0in t\u00f6luvert fr\u00e1brug\u00f0in \u00feeirri h\u00e1t\u00ed\u00f0 sem vi\u00f0 \u00feekkjum \u00ed dag. \u00de\u00e1 spilu\u00f0u \u00ed\u00fer\u00f3ttir mj\u00f6g st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt \u00ed dagskr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0ar, \u00fe\u00e1 helst frj\u00e1lsar \u00ed\u00fer\u00f3ttir. T\u00fdrarar komu sterkir inn \u00fear, en Fri\u00f0rik Jesson haf\u00f0i einmitt sett sitt fyrsta \u00cdslandsmet \u00ed stangarst\u00f6kki \u00e1ri\u00f0 1923 undir formerkjum T\u00fds og kepptust menn vi\u00f0 a\u00f0 sl\u00e1 \u00fea\u00f0 met \u00e1 n\u00e6stu \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0um. &nbsp;Kappr\u00f3\u00f0ur var einnig vins\u00e6l grein \u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00e1\u00f0ur en hann f\u00e6r\u00f0ist yfir \u00e1 Sj\u00f3mannadaginn, en t\u00fdrarar voru einstaklega vel a\u00f0 s\u00e9r \u00ed \u00feeirri grein, enda me\u00f0 kempur \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Ben\u00f3n\u00fd Fri\u00f0riksson (Binna \u00ed Gr\u00f6f), Gu\u00f0na J\u00f3nsson (Vegam\u00f3tum), J\u00fal\u00edus Snorrason (Hl\u00ed\u00f0arenda) og Kristinn Fri\u00f0riksson (L\u00e1trum), undir kr\u00f6ftugri stj\u00f3n \u00deorgeirs J\u00f3elssonar (S\u00e6lundi). Sagt er a\u00f0 T\u00fdr hafi unni\u00f0 r\u00f3\u00f0rarkeppnina 14 skipti e\u00f0a alltaf nema einu sinni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00derett\u00e1ndinn er okkur \u00f6llum hugleikinn. Vi\u00f0 munum eftir \u00f6llu fj\u00f6rinu og \u00feeim \u00e6vint\u00fdrabl\u00e6 sem fylgt hefur \u00ferett\u00e1ndagle\u00f0inni \u00ed \u00feau fj\u00f6lm\u00f6rgu \u00e1r sem h\u00fan hefur vara\u00f0. Gle\u00f0in eins og vi\u00f0 \u00feekkjum hana \u00ed dag kemur einmitt \u00far ranni T\u00fds. \u00c1ri\u00f0 1927 h\u00e9lt kvenf\u00e9lag h\u00e9r \u00ed Eyjum gr\u00edmudansleik og st\u00f3\u00f0 st\u00fakan Sunna fyrir blysf\u00f6r og \u00e1lfadansi \u00e1 Brimh\u00f3lafl\u00f6tum daginn eftir. \u00dea\u00f0 var \u00fe\u00f3 ekki fyrr en um 1946 sem sk\u00e1tarnir h\u00e9r \u00ed Eyjum st\u00f3\u00f0u fyrir blysf\u00f6r j\u00f3lasveinanna, en \u00feeir gengu hringfer\u00f0 um eldsk\u00e1lina \u00ed Helgafelli. \u00c1ri seinna var ger\u00f0 tilraun a\u00f0 bera blys \u00ed b\u00e6inn ofan af Heimakletti, en \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tti heldur h\u00e6ttulegt \u00e1 \u00feessum t\u00edma \u00e1rs og var \u00fev\u00ed ekki endurteki\u00f0. T\u00fdrarar t\u00f3ku svo vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni 1948 e\u00f0a 1949 og var \u00fe\u00e1 H\u00e1in valin sem hentugur sta\u00f0ur fyrir heimlei\u00f0 j\u00f3lasveinanna. F\u00f3ru T\u00fdrarar \u00fear fyrstu j\u00f3lasveina fer\u00f0 s\u00edna, me\u00f0 heimatilb\u00fain blys sem \u00feeir svo fleyg\u00f0u fram af br\u00faninni til a\u00f0 l\u00e1ta vita a\u00f0 j\u00f3lasveinarnir v\u00e6ru komnir til s\u00edns heima. \u00deessi hef\u00f0 \u00fe\u00f3tti mj\u00f6g skemmtileg og vatt h\u00fan upp\u00e1 sig sm\u00e1tt og sm\u00e1tt og f\u00f3ru fleiri a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed henni. \u00c1ri\u00f0 1962, sk\u00f6mmu fyrir j\u00f3l var haft samband vi\u00f0 stj\u00f3rnir \u00de\u00f3rs og Nor\u00f0lendingaf\u00e9lagsins um samstarf um \u00ferett\u00e1ndann, en \u00fe\u00f3tti stj\u00f3rnunum t\u00edminn of naumur og var \u00fev\u00ed \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 T\u00fdr myndi alfari\u00f0 sj\u00e1 um \u00ferett\u00e1ndagle\u00f0ina. St\u00e6kka\u00f0i gle\u00f0in sm\u00e1tt og sm\u00e1tt og auk j\u00f3lasveinanna b\u00e6ttust vi\u00f0 a\u00f0rar kynjaverur eins og \u00e1lfar, \u00e1lfak\u00f3ngur og \u00e1lfadrottning, p\u00fakar og a\u00f0 \u00f3gleymdum tr\u00f6llunum. Lj\u00f3st er a\u00f0 T\u00fdrarar hafa sett mikinn svip \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3tta- og menningaarflei\u00f0 Vestmannaeyja. \u00c1t\u00f6k li\u00f0ana T\u00fds og \u00de\u00f3rs eru eftirminnileg og g\u00f3\u00f0l\u00e1tlegur r\u00edgur \u00feeirra \u00e1 milli skemmti Eyjam\u00f6nnum \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina, s\u00e9rstaklega \u00feegar reynt var a\u00f0 toppa hverja \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00e1 f\u00e6tur annarri. Vi\u00f0 Vestmannaeyjingar erum heppin a\u00f0 eiga st\u00f3ran h\u00f3p f\u00f3lks sem er tilb\u00fai\u00f0 a\u00f0 leggja \u00e1 sig mikla vinnu vi\u00f0 a\u00f0 efla hreysti og menningu okka Eyjamanna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd\u00fer\u00f3ttir hafa veri\u00f0 Eyjam\u00f6nnum hugleiknar \u00ed gegnum \u00e1rin og hefur f\u00f3tboltinn veri\u00f0 \u00fear fremstur \u00ed flokki. \u00c1\u00f0ur en \u00cdBV kom til s\u00f6gunnar \u00fe\u00e1 voru helstu \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9l\u00f6g Vestmananeyja \u00feau \u00de\u00f3r og<\/p>\n","protected":false},"author":10,"featured_media":13812,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[53],"tags":[],"class_list":["post-13811","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir-2026"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13811","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/10"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13811"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13811\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13818,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13811\/revisions\/13818"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/13812"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13811"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13811"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13811"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}