{"id":13885,"date":"2026-11-26T19:26:36","date_gmt":"2026-11-26T19:26:36","guid":{"rendered":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/?p=13885"},"modified":"2026-11-26T19:26:39","modified_gmt":"2026-11-26T19:26:39","slug":"moli-manadarins-umbrot-umslog-og-ungir-menn-agrip-um-surtseyjaraevintyri","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/moli-manadarins-umbrot-umslog-og-ungir-menn-agrip-um-surtseyjaraevintyri\/","title":{"rendered":"Moli m\u00e1na\u00f0arins \u2013 Umbrot, umsl\u00f6g og ungir menn: \u00c1grip um Surtseyjar\u00e6vint\u00fdri."},"content":{"rendered":"\n<p><\/p>\n\n\n\n<p>\u00deann 14. n\u00f3vember 1963 var skipi\u00f0 \u00cdsleifur II VE vi\u00f0 siglingu 18 km su\u00f0vestur af Heimaey \u00feegar kokkurinn um bor\u00f0, \u00d3lafur G. Vestmann, var\u00f0 var vi\u00f0 a\u00f0 eitthva\u00f0 undarlegt v\u00e6ri \u00e1 sei\u00f0i \u00e1 \u00fev\u00ed sv\u00e6\u00f0i. Kalla\u00f0i hann til skipstj\u00f3rans Gu\u00f0mars T\u00f3massonar og l\u00e9t hann vita af \u00feessu. Fylgdi \u00f6ll \u00e1h\u00f6fnin \u00feeim upp \u00e1 dekk, en h\u00fan haf\u00f0i seti\u00f0 vi\u00f0 morgunkaffi\u00f0 sitt \u00feegar h\u00fan heyr\u00f0i tilkynningu \u00d3lafs. F\u00f3ru \u00feeir a\u00f0 finna undarlega lykt og s\u00e1u s\u00ed\u00f0an reykjarm\u00f6kk st\u00edga \u00far sj\u00f3num skammt fr\u00e1 \u00feeim. Haf\u00f0i Gu\u00f0mar samband vi\u00f0 J\u00f3n Stef\u00e1nsson loftskeytamann hj\u00e1 Vestmannaeyjarad\u00ed\u00f3 til a\u00f0 spyrjast fyrir um hvort eitthva\u00f0 skip v\u00e6ri \u00fearna \u00ed vandr\u00e6\u00f0um. Engin sl\u00edk skilabo\u00f0 l\u00e1gu fyrir hj\u00e1 J\u00f3ni. Gu\u00f0mar sag\u00f0i J\u00f3ni a\u00f0 hann s\u00e6i gjalls\u00falur st\u00edga til lofts og tilkynnti honum a\u00f0 um ne\u00f0ansj\u00e1vargos v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. J\u00f3n \u00e1tti b\u00e1gt me\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed, enda vanur alls kyns st\u00f3rkallafisker\u00edss\u00f6gum. \u00de\u00e1 datt \u00c1rna Gu\u00f0mundssyni v\u00e9lstj\u00f3ra \u00ed hug a\u00f0 m\u00e6la hitastigi\u00f0 \u00ed sj\u00f3num og m\u00e6ldist \u00fea\u00f0 11 gr\u00e1\u00f0ur, en vanalega var hitinn \u00ed kringum 7\u20138 gr\u00e1\u00f0ur \u00e1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i. \u00dear me\u00f0 f\u00e9kkst sta\u00f0festing \u00e1 a\u00f0 ne\u00f0ansj\u00e1vargos var hafi\u00f0. Svo segir fr\u00e1 upphafi Surtseyjargosins \u00ed b\u00f3k \u00c1smunds Fri\u00f0rikssonar \u201eStrand \u00ed gini g\u00edgsins\u201c. Surtseyjargosi\u00f0 var\u00f0i fr\u00e1 \u00e1\u00f0urnefndri dagsetningu til 5. j\u00fan\u00ed 1967 og er lengsta samfellda gos \u00ed s\u00f6gu \u00cdslandsbygg\u00f0ar. \u00cd heildina kom upp 1,1 r\u00famk\u00edl\u00f3metri af gosefni, \u00fear af 60\u201370% gj\u00f3ska og 30\u201340% hraun. \u00c1 sama sv\u00e6\u00f0i t\u00f3ku a\u00f0 myndast \u00ferj\u00e1r a\u00f0rar eldst\u00f6\u00f0var, \u00fe\u00e6r Syrtlingur, Surtla og J\u00f3lnir. Surtla n\u00e1\u00f0i aldrei upp fyrir sj\u00e1varm\u00e1l, en s\u00f6gu J\u00f3lnis og Syrtlings rekjum vi\u00f0 a\u00f0eins betur s\u00ed\u00f0ar \u00ed textanum. \u00c1ri\u00f0 1965 var\u00f0 vart vi\u00f0 fyrstu \u00e6\u00f0pl\u00f6ntuna \u00e1 eyjunni, en fj\u00f6ruk\u00e1l haf\u00f0i teki\u00f0 a\u00f0 vaxa \u00fear \u00e1 \u00feessum t\u00edma. Sama \u00e1r var Surtseyjarf\u00e9lagi\u00f0 stofna\u00f0 og tekin var s\u00fa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 gera eyjuna a\u00f0 fri\u00f0lendi. F\u00e1um \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar e\u00f0a 1970 t\u00f3ku fuglar a\u00f0 verpa \u00e1 eyjunni. Vakti \u00feetta gos heimsathygli og var miki\u00f0 fjalla\u00f0 um \u00fea\u00f0 \u00ed heimspressunni. \u00deekktur franskur bla\u00f0ama\u00f0ur a\u00f0 nafni G\u00e9rard G\u00e9ry, sem skrifa\u00f0i fyrir franska vikuriti\u00f0 Paris Match, ger\u00f0i s\u00e9r fer\u00f0 til Vestmannaeyja til a\u00f0 fylgjast me\u00f0 afdrifum gosins. Me\u00f0 honum \u00ed f\u00f6r voru lj\u00f3smyndarinn Philippe Laffon og fjallg\u00f6nguma\u00f0urinn Pierre Mazeaud og \u00e6tlu\u00f0u \u00feessir menn s\u00e9r a\u00f0 ver\u00f0a fyrstir til a\u00f0 st\u00edga f\u00e6ti \u00e1 n\u00fdju eyjuna sem var a\u00f0 myndast. L\u00e9tu \u00feeir ver\u00f0a af \u00fev\u00ed \u00feann 6. desember 1963, en \u00feeir h\u00f6f\u00f0u haft me\u00f0 s\u00e9r sl\u00f6ngub\u00e1t og brunu\u00f0u \u00e1 honum \u00e1 gossv\u00e6\u00f0i\u00f0. Ekki var dv\u00f6l \u00feeirra \u00e1 eyjunni l\u00f6ng, en \u00feeir st\u00f6ldru\u00f0u vi\u00f0 \u00ed um 20 m\u00edn\u00fatur \u00e1\u00f0ur en \u00feeir \u00feurftu fr\u00e1 a\u00f0 hverfa vegna goshrynanna \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Fr\u00f6kkunum haf\u00f0i \u00fev\u00ed tekist a\u00f0 nema land \u00ed yngstu eyju samt\u00edmans, Vestmannaeyjingum til mikillar m\u00e6\u00f0u, \u00fear sem \u00feeir t\u00f6ldu \u00feann hei\u00f0ur vera sinn r\u00e9tt. Surtsey var skr\u00e1\u00f0 \u00e1 heimsminjaskr\u00e1 UNESCO \u00e1ri\u00f0 2008 vegna \u00f3metanlegs gildis hennar til ranns\u00f3knar \u00e1 n\u00fdju l\u00edfr\u00edki \u00e1 heimsm\u00e6likvar\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p>Ungur ma\u00f0ur a\u00f0 nafni P\u00e1ll Helgason br\u00e1 \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0 \u00feegar n\u00fdtt Surtseyjarfr\u00edmerki var gefi\u00f0 \u00fat 1965 a\u00f0 ver\u00f0a s\u00e9r \u00fat um 4500 eint\u00f6k af fyrstadagsumsl\u00f6gum sem stimplu\u00f0 voru \u00e1 p\u00f3sth\u00fasi Vestmannaeyja me\u00f0 \u00fatg\u00e1fudegi \u00feeirra. Hann og f\u00e9lagar hans \u00d3lafur Gu\u00f0mundsson, Viktor og \u00deorkell Sigurj\u00f3nssynir \u00e1kv\u00e1\u00f0u a\u00f0 fara \u00fat \u00ed Surtsey \u00ed sm\u00e1lei\u00f0angur, jafnvel \u00fe\u00f3tt bl\u00e1tt bann l\u00e6gi vi\u00f0 \u00fev\u00ed, enda t\u00f6ldu Eyjamenn sig undanskilda \u00feessu banni \u00fev\u00ed \u00ed \u00feeirra hug var Surtsey hluti af Vestmannaeyjaklasanum og tilheyr\u00f0i \u00feeim. Verkefni\u00f0 sem P\u00e1ll og f\u00e9lagar h\u00f6f\u00f0u \u00ed huga var a\u00f0 reisa \u201ep\u00f3sth\u00fas\u201c \u00ed Surtsey og stimpla \u00fear \u00feessi 4500 fyrstadagsumsl\u00f6g sem P\u00e1ll haf\u00f0i or\u00f0i\u00f0 s\u00e9r \u00fat um me\u00f0 s\u00e9rst\u00f6kum stimpli sem P\u00e1ll haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 b\u00faa til fyrir \u00feetta upp\u00e1t\u00e6ki \u00feeirra. \u00deann 23. j\u00fan\u00ed 1965 h\u00e9ldu \u00feeir \u00fat \u00ed eyjuna me\u00f0 tjald, umsl\u00f6gin, stimpilinn og nokkra kolla. N\u00fa skyldi r\u00edsa \u201ep\u00f3sth\u00fas\u201c \u00ed Surtsey. Gekk fer\u00f0in og landtakan vel, enda alvanir menn \u00fearna \u00e1 fer\u00f0inni. \u201eP\u00f3sth\u00fasi\u00f0\u201c (tjaldi\u00f0) var reist og sat P\u00e1ll sveittur \u00e1 kolli \u00ed tjaldinu vi\u00f0 a\u00f0 stimpla \u00feessi 4500 umsl\u00f6g sem hann haf\u00f0i teki\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r, en \u00e1 me\u00f0an \u00f3ma\u00f0i \u00ed \u00fatvarpst\u00e6ki sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u haft me\u00f0 s\u00e9r augl\u00fdsing um s\u00f6lu \u00feessara umslaga \u00ed gleraugnaversluninni F\u00f3kus \u00ed Reykjav\u00edk. Daginn eftir f\u00f3r P\u00e1ll me\u00f0 umsl\u00f6gin til Reykjav\u00edkur og afhenti \u00feau til s\u00f6lu \u00ed versluninni, en umsl\u00f6gin sj\u00e1lf kostu\u00f0u a\u00f0eins 7 kr\u00f3nur, en voru seld \u00e1 50 kr\u00f3nur. \u00c1 me\u00f0an P\u00e1ll sat og g\u00e6ddi s\u00e9r \u00e1 \u00eds fylgdist hann me\u00f0 umsl\u00f6gunum renna \u00fat eins og heitar lummur.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar \u00fea\u00f0 komst til afspurnar a\u00f0 n\u00fd eyja haf\u00f0i myndast vi\u00f0 Surtsey voru Vestmannaeyjingar ekki \u00e1 \u00feeim buxunum a\u00f0 einhverjir a\u00f0rir yr\u00f0u \u00e1 undan \u00feeim \u00ed land. Ungir ofurhugar h\u00e9ldu \u00fe\u00e1 \u00ed f\u00f6r \u00ed \u00e1tt a\u00f0 gossv\u00e6\u00f0inu, \u00fev\u00ed \u00feeir \u00e6tlu\u00f0u ekki a\u00f0 l\u00e1ta neinn annan hafa af \u00cdslendingum \u00feann hei\u00f0ur a\u00f0 vera fyrstir \u00e1 land eins og ger\u00f0ist me\u00f0 Surtsey. \u00deetta voru \u00feeir P\u00e1ll Helgason, Ragnar J\u00f3hannesson og Bragi og G\u00edsli Steingr\u00edmssynir. \u00deessir ungu menn \u00e6tlu\u00f0u s\u00e9r a\u00f0 ver\u00f0a fyrstir til a\u00f0 st\u00edga \u00e1 land \u00e1 Syrtlingi \u00feegar hann var byrja\u00f0ur a\u00f0 myndast. \u00cd vi\u00f0t\u00f6lum vi\u00f0 P\u00e1l Helgason \u00ed Morgunbla\u00f0inu og \u00dej\u00f3\u00f0viljanum \u00feann 10. j\u00fan\u00ed 1965 segir P\u00e1ll fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar hann f\u00f3r \u00ed \u00feessa sva\u00f0ilf\u00f6r og a\u00f0 hann hafi haft me\u00f0 s\u00e9r \u00edslenska f\u00e1nann sem hann haf\u00f0i fali\u00f0 innankl\u00e6\u00f0a, \u00fev\u00ed hann var ekki viss um vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 f\u00e9laga sinna gagnvart hugmynd hans um a\u00f0 reka f\u00e1nann ni\u00f0ur \u00e1 n\u00fdju eyjunni Syrtlingi sem tekin var a\u00f0 myndast. Sigldu \u00feeir \u00ed kringum eyna \u00ed drj\u00faglanga stund \u00e1 b\u00e1tnum J\u00f3ni Kr\u00f3k sem var \u00ed eigu P\u00e1ls og reyndu a\u00f0 t\u00edmasetja gossprengingarnar sem \u00e1ttu s\u00e9r sta\u00f0, en \u00fe\u00f3tti \u00fea\u00f0 erfitt \u00fear sem \u00fe\u00e6r voru heldur \u00f3reglulegar. Stundum li\u00f0u 20 sek\u00fandur \u00e1 milli hrina, en stundum var bi\u00f0in allt a\u00f0 3 m\u00edn\u00fatum. T\u00f3ku \u00feessir v\u00f6sku peyjar \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 st\u00edma \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 eynni og taka \u00fe\u00e1 \u00e1h\u00e6ttu a\u00f0 taka \u00fear land. P\u00e1ll sag\u00f0i \u00fe\u00e1 samfer\u00f0am\u00f6nnum s\u00ednum fr\u00e1 f\u00e1nanum sem hann bar innankl\u00e6\u00f0a og leist \u00feeim afar vel \u00e1 \u00fe\u00e1 hugmynd hans a\u00f0 reisa f\u00e1nann \u00fear. Er \u00feeir voru komnir n\u00f3gu n\u00e1l\u00e6gt eyjunni st\u00f6\u00f0vu\u00f0u \u00feeir b\u00e1tinn og vatt P\u00e1ll s\u00e9r \u00ed g\u00famm\u00edb\u00e1t sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r. Var g\u00famm\u00edb\u00e1turinn festur \u00ed l\u00ednu og t\u00f3k P\u00e1ll a\u00f0 r\u00f3a b\u00e1tnum \u00ed \u00e1tt a\u00f0 Syrtlingi eins hratt og hann m\u00f6gulega gat. T\u00f3kst landtakan g\u00edfurlega vel, en P\u00e1ll minnist \u00feess a\u00f0 eyjan hafi \u00f6ll skolfi\u00f0 og n\u00f6tra\u00f0 undir f\u00f3tum s\u00e9r, eins og hann st\u00e6\u00f0i ofan \u00e1 risast\u00f3rri aflmikilli v\u00e9l. T\u00f3k P\u00e1ll sig til og stakk ni\u00f0ur \u00edslenska f\u00e1nanum sem hann haf\u00f0i \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r, en ekki vildi svo vel til a\u00f0 fyrsti sta\u00f0urinn sem hann stakk honum ni\u00f0ur \u00e1 molna\u00f0i s\u00edfellt \u00ed sundur og h\u00e9lt ekki f\u00e1nanum. N\u00fa voru g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 d\u00fdr \u00fev\u00ed eyjan skalf \u00f6ll og n\u00f6tra\u00f0i og n\u00e6sta sprenging yfirvofandi. Fann P\u00e1ll loks annan sta\u00f0 sem hann n\u00e1\u00f0i a\u00f0 reka f\u00e1nann ni\u00f0ur \u00e1 svo hann st\u00f3\u00f0. \u00c6tlunarverki \u00feeirra f\u00e9laga var loki\u00f0, \u00feeim t\u00f3kst a\u00f0 eigna s\u00e9r eyjuna fyrir h\u00f6nd Vestmannaeyjinga og allra \u00cdslendinga. Fl\u00fdtti P\u00e1ll s\u00e9r aftur \u00ed g\u00famm\u00edb\u00e1tinn en hann haf\u00f0i reki\u00f0 fr\u00e1 eyjunni og \u00feurfti hann a\u00f0 va\u00f0a \u00fat \u00ed sj\u00f3inn og klifra um bor\u00f0. Hann gaf merki um a\u00f0 hann v\u00e6ri h\u00f3lpinn og h\u00f3fu samfer\u00f0amenn hans, Bragi, G\u00edsli og Ragnar, a\u00f0 draga b\u00e1tinn aftur til baka eins hratt og \u00feeir g\u00e1tu. Samvinna \u00feeirra allra haf\u00f0i tryggt \u00feetta mikla afrek sem unni\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 s\u00f6gn P\u00e1ls. Var\u00f0skipi\u00f0 \u00de\u00f3r var sta\u00f0sett vi\u00f0 eldsumbrotin og h\u00f6f\u00f0u skipsverjar fylgst me\u00f0 hetjuf\u00f6r \u00feessara ungu ofurhuga, \u00e1samt Bjarna Benediktssyni fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra og Gu\u00f0mundi \u00cd. Gu\u00f0mundssyni utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra. \u00deegar P\u00e1ll var kominn aftur um bor\u00f0 \u00ed J\u00f3n Kr\u00f3k t\u00f3ku \u00feeir f\u00e9lagar stefnuna a\u00f0 var\u00f0skipinu og f\u00f3ru um bor\u00f0. Fengu \u00feeir sta\u00f0festingu og miklar \u00feakkir fr\u00e1 skipsverjum, sem og fors\u00e6tis- og utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herrum, fyrir a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u veri\u00f0 fyrstir til a\u00f0 nema land \u00e1 Syrtlingi. Gosi\u00f0 \u00ed Syrtlingi st\u00f3\u00f0 fr\u00e1 22. ma\u00ed 1965 og byrja\u00f0i sem ne\u00f0ansj\u00e1vargos og \u00fev\u00ed lauk 17. okt\u00f3ber sama \u00e1r og n\u00e1\u00f0i eyjan 70 metrum a\u00f0 h\u00e6\u00f0. Sorglegt er \u00fe\u00f3 a\u00f0 minnast \u00feess a\u00f0 eftir \u00feetta mikla afrek \u00feessara fr\u00e6knu manna hvarf eyjan \u00ed hafi\u00f0 \u00feann 24. okt\u00f3ber sama \u00e1r og f\u00e1ninn g\u00f3\u00f0i me\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Annan \u00ed j\u00f3lum 1965 h\u00f3fst n\u00fdtt gos vi\u00f0 Surtsey. Hlaut \u00feetta gossv\u00e6\u00f0i nafni\u00f0 J\u00f3lnir s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 gosi\u00f0 h\u00f3fst um j\u00f3lin, en nafni\u00f0 var einnig vi\u00f0eigandi \u00fear sem nafn Surtseyjar \u00e1 r\u00e6tur s\u00ednar a\u00f0 rekja til norr\u00e6nnar go\u00f0afr\u00e6\u00f0i en \u00fea\u00f0 \u00e1 J\u00f3lnir l\u00edka, enda eitt af heitum \u00d3\u00f0ins. St\u00e6kka\u00f0i J\u00f3lnir og minnka\u00f0i \u00e1 me\u00f0an \u00e1 gosinu st\u00f3\u00f0 og n\u00e1\u00f0i loks 570 metra lengd og 62 metra h\u00e6\u00f0. Enginn annar en P\u00e1ll Helgason st\u00f3\u00f0 vaktina til a\u00f0 g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 enginn annar en Eyjama\u00f0ur stigi \u00ed fyrsta skipti\u00f0 \u00e1 eyjuna. \u00cd b\u00f3k \u00c1smundar Fri\u00f0rikssonar \u201eStrand \u00ed gini g\u00edgsins\u201c segir fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar P\u00e1ll sigldi \u00e1 b\u00e1tnum Skutlu \u00ed \u00e1tt a\u00f0 eyjunni \u00e1samt Stef\u00e1ni br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum til a\u00f0 nema \u00fear land. T\u00f3kst \u00feeim a\u00f0 koma b\u00e1tnum a\u00f0 n\u00fdju eyjunni og st\u00edga til jar\u00f0ar, en \u00feeir l\u00fdstu a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00feannig a\u00f0 eyjan v\u00e6ri \u00far glj\u00fapri og lausri \u00f6sku og g\u00e1tu \u00feeir l\u00edti\u00f0 athafna\u00f0 sig \u00ed sykurmj\u00fakri \u00f6skunni. \u00dev\u00ed st\u00f6ldru\u00f0u \u00feeir ekki lengi vi\u00f0, enda skammt fr\u00e1 \u00feeim geysu\u00f0u \u00f3gnv\u00e6nlegar og st\u00f3rh\u00e6ttulegar goshrynur \u00far k\u00f6tlunum tveimur. Eins og \u00e1\u00f0ur hefur komi\u00f0 fram \u00fe\u00e1 h\u00f3fst gosi\u00f0 sem mynda\u00f0i J\u00f3lni \u00ed desember 1965, n\u00e1nar tilteki\u00f0 \u00feann 26. Eyjan st\u00e6kka\u00f0i og minnka\u00f0i \u00e1 me\u00f0an gosinu st\u00f3\u00f0 vegna mikils sj\u00f3gangs, en \u00fea\u00f0 var\u00f0i allt til 8.\u201310. \u00e1g\u00fast \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar. \u00cd lok september 1966 t\u00f3kst sj\u00f3num a\u00f0 gleypa J\u00f3lni endanlega.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deann 14. n\u00f3vember 1963 var skipi\u00f0 \u00cdsleifur II VE vi\u00f0 siglingu 18 km su\u00f0vestur af Heimaey \u00feegar kokkurinn um bor\u00f0, \u00d3lafur G. Vestmann, var\u00f0 var vi\u00f0 a\u00f0 eitthva\u00f0 undarlegt v\u00e6ri<\/p>\n","protected":false},"author":10,"featured_media":13886,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[53],"tags":[],"class_list":["post-13885","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir-2026"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13885","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/10"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13885"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13885\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13888,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13885\/revisions\/13888"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/13886"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13885"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13885"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.sagnheimar.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13885"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}