Það var á því herrans ári 1932 að ungur maður ákvað að stuðla að stofnun byggðasafns hér í Vestmannaeyjum eftir að honum áskotnaðist púðurhorn úr nautshorni. Þessi maður hafði kennt við Gagnfræðiskólann og einnig gegnt starfi skólastjóra þar. Nemendur hans höfðu einmitt hvatt hann til að koma á laggirnar safni hér í Eyjum. Þetta var enginn annar en Þorsteinn Þ. Víglundsson, faðir byggðasafns okkar Eyjamanna. Þorsteinn fæddist 19. október 1899 að Melum í Mjóafirði. Foreldrar hans voru Jónína Guðrún Þorsteinsdóttir og Víglundur Þorgrímsson. Hjónin Stefanía Guðjónsdóttir og Vigfús Sigurðsson tóku Þorstein í fóstur þegar hann var barn og bjó hann með þeim að Hólum í Norðfirði. Að loknu barnaskólanámi sótti Þorsteinn Búnaðarskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan sem búfræðingur tvítugur að aldri. Árin 1921–1923 stundaði hann nám við lýðháskóla í Noregi og síðar lauk hann námi við menntaskóla á Suður-Mæri. Þorsteinn lagði svo leið sína í Kennaraskóla Íslands og lauk námi þar árið 1927. Sama ár flutti hann ásamt eiginkonu sinni, Ingigerði Jóhannsdóttur, til Vestmannaeyja. Í Eyjum gegndi hann starfi skólastjóra Unglingaskóla Vestmannaeyja til ársins 1963. Hann var einnig virkur í Verkamannafélaginu Drífanda, gaf út tímaritið Blik í 44 ár, var sparisjóðsstjóri og fleira. Þekktasta afrek hans var þó að koma á laggirnar Byggðasafni Vestmannaeyja, eins og áður hefur komið fram. Þorsteinn hlaut heiðursborgaraverðlaun í Vestmannaeyjum fyrir framlag sitt til menningarmála. Þann 3. september 1984 lést Þorsteinn, en arfleifð hans lifir enn og mun lifa um ókomin ár. Við skulum nú rýna aðeins í sögu byggðasafnsins.
Fyrst um sinn sankaði Þorsteinn að sér ýmsum munum og geymdi þá heima hjá sér, fyrst í Háagarði en síðar uppi á háalofti í Goðasteini. Með honum í hópi frumkvöðla safnsins voru þeir Árni Árnason símritari og Eyjólfur Gíslason frá Bessastöðum. Þegar Gagnfræðiskólinn var stækkaður komst Þorsteinn aldeilis í álnir, því þar fékk hann betri aðstöðu til að geyma munina sem hann hafði safnað að sér í gegnum árin. Munirnir voru geymdir þar uppi á lofti í um tólf ár. Nemendur Þorsteins voru helstu hvatningsmenn hans og hjálparhellur við söfnun og flutning munanna. Þeir aðstoðuðu meðal annars við að bera munina upp brattan stiga á skólaloftið. Þegar Sparisjóðurinn veitti safninu aðstöðu á þriðju hæð í húsnæði sínu árið 1964 urðu gríðarleg umskipti í sögu safnsins. Hinn 12. júlí sama ár var það opnað almenningi. Sumarið 1969 var svo fyrsta skóflustungan tekin að húsi sem átti að hýsa byggðasafn, bókasafn og listaverk í eigu bæjarins. Á þessum tíma var byggðasafnið á tveimur stöðum: hluti þess var á þriðju hæð Sparisjóðsins og hinn hlutinn í tveimur skólastofum Iðnskólans við Heiðarveg, þar sem Tónlistarskólinn er nú.
Þegar gosið hófst aðfaranótt 23. janúar 1973 varð fólki mjög brugðið. Þótt tekist hefði að flytja íbúa Vestmannaeyja til lands á einni nóttu ríkti mikil óvissa um framtíð eyjarinnar. Hraunstraumurinn stefndi á bæinn og þungt gjóskufall lagðist yfir húsin. Menningararfurinn á þriðju hæð Sparisjóðsins var í bráðri hættu. Aðeins fjórum dögum eftir að gosið hófst hafði Þorsteinn safnað saman björgunarliði, meðal annars sonum sínum, og hélt hópurinn út í Eyjar. Markmiðið var að bjarga munum byggðasafnsins. Björgunarhópurinn vann mikið þrekvirki þá daga sem björgunin stóð yfir, enda þurfti að pakka hverjum hlut vandlega á meðan keppst var við tímann. Mununum var komið fyrir í fjórum gámum sem fluttir voru til Reykjavíkur með skipinu Dettifossi. Þar tók Þór Magnússon þjóðminjavörður á móti þeim á bryggjunni og sá til þess að þeir yrðu geymdir á öruggum stað í geymslu Þjóðminjasafnsins á meðan gosið geisaði í Eyjum. Fimm árum eftir gosið, hinn 15. apríl 1978, var Safnahús Vestmannaeyja vígt og Byggðasafn Vestmannaeyja fékk loksins varanlegt heimili.
Púðurhorn úr nautshorni, einfaldur og hversdagslegur munur á sínum tíma, varð innblásturinn að safninu sem við þekkjum í dag. Saga Þorsteins og byggðasafnsins sýnir okkur að einfaldar hugmyndir geta orðið að miklum og merkilegum afrekum.



