Þann 14. nóvember 1963 var skipið Ísleifur II VE við siglingu 18 km suðvestur af Heimaey þegar kokkurinn um borð, Ólafur G. Vestmann, varð var við að eitthvað undarlegt væri á seiði á því svæði. Kallaði hann til skipstjórans Guðmars Tómassonar og lét hann vita af þessu. Fylgdi öll áhöfnin þeim upp á dekk, en hún hafði setið við morgunkaffið sitt þegar hún heyrði tilkynningu Ólafs. Fóru þeir að finna undarlega lykt og sáu síðan reykjarmökk stíga úr sjónum skammt frá þeim. Hafði Guðmar samband við Jón Stefánsson loftskeytamann hjá Vestmannaeyjaradíó til að spyrjast fyrir um hvort eitthvað skip væri þarna í vandræðum. Engin slík skilaboð lágu fyrir hjá Jóni. Guðmar sagði Jóni að hann sæi gjallsúlur stíga til lofts og tilkynnti honum að um neðansjávargos væri að ræða. Jón átti bágt með að trúa því, enda vanur alls kyns stórkallafiskeríssögum. Þá datt Árna Guðmundssyni vélstjóra í hug að mæla hitastigið í sjónum og mældist það 11 gráður, en vanalega var hitinn í kringum 7–8 gráður á þessu svæði. Þar með fékkst staðfesting á að neðansjávargos var hafið. Svo segir frá upphafi Surtseyjargosins í bók Ásmunds Friðrikssonar „Strand í gini gígsins“. Surtseyjargosið varði frá áðurnefndri dagsetningu til 5. júní 1967 og er lengsta samfellda gos í sögu Íslandsbyggðar. Í heildina kom upp 1,1 rúmkílómetri af gosefni, þar af 60–70% gjóska og 30–40% hraun. Á sama svæði tóku að myndast þrjár aðrar eldstöðvar, þær Syrtlingur, Surtla og Jólnir. Surtla náði aldrei upp fyrir sjávarmál, en sögu Jólnis og Syrtlings rekjum við aðeins betur síðar í textanum. Árið 1965 varð vart við fyrstu æðplöntuna á eyjunni, en fjörukál hafði tekið að vaxa þar á þessum tíma. Sama ár var Surtseyjarfélagið stofnað og tekin var sú ákvörðun að gera eyjuna að friðlendi. Fáum árum síðar eða 1970 tóku fuglar að verpa á eyjunni. Vakti þetta gos heimsathygli og var mikið fjallað um það í heimspressunni. Þekktur franskur blaðamaður að nafni Gérard Géry, sem skrifaði fyrir franska vikuritið Paris Match, gerði sér ferð til Vestmannaeyja til að fylgjast með afdrifum gosins. Með honum í för voru ljósmyndarinn Philippe Laffon og fjallgöngumaðurinn Pierre Mazeaud og ætluðu þessir menn sér að verða fyrstir til að stíga fæti á nýju eyjuna sem var að myndast. Létu þeir verða af því þann 6. desember 1963, en þeir höfðu haft með sér slöngubát og brunuðu á honum á gossvæðið. Ekki var dvöl þeirra á eyjunni löng, en þeir stöldruðu við í um 20 mínútur áður en þeir þurftu frá að hverfa vegna goshrynanna á svæðinu. Frökkunum hafði því tekist að nema land í yngstu eyju samtímans, Vestmannaeyjingum til mikillar mæðu, þar sem þeir töldu þann heiður vera sinn rétt. Surtsey var skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 2008 vegna ómetanlegs gildis hennar til rannsóknar á nýju lífríki á heimsmælikvarða.
Ungur maður að nafni Páll Helgason brá á það ráð þegar nýtt Surtseyjarfrímerki var gefið út 1965 að verða sér út um 4500 eintök af fyrstadagsumslögum sem stimpluð voru á pósthúsi Vestmannaeyja með útgáfudegi þeirra. Hann og félagar hans Ólafur Guðmundsson, Viktor og Þorkell Sigurjónssynir ákváðu að fara út í Surtsey í smáleiðangur, jafnvel þótt blátt bann lægi við því, enda töldu Eyjamenn sig undanskilda þessu banni því í þeirra hug var Surtsey hluti af Vestmannaeyjaklasanum og tilheyrði þeim. Verkefnið sem Páll og félagar höfðu í huga var að reisa „pósthús“ í Surtsey og stimpla þar þessi 4500 fyrstadagsumslög sem Páll hafði orðið sér út um með sérstökum stimpli sem Páll hafði látið búa til fyrir þetta uppátæki þeirra. Þann 23. júní 1965 héldu þeir út í eyjuna með tjald, umslögin, stimpilinn og nokkra kolla. Nú skyldi rísa „pósthús“ í Surtsey. Gekk ferðin og landtakan vel, enda alvanir menn þarna á ferðinni. „Pósthúsið“ (tjaldið) var reist og sat Páll sveittur á kolli í tjaldinu við að stimpla þessi 4500 umslög sem hann hafði tekið með sér, en á meðan ómaði í útvarpstæki sem þeir höfðu haft með sér auglýsing um sölu þessara umslaga í gleraugnaversluninni Fókus í Reykjavík. Daginn eftir fór Páll með umslögin til Reykjavíkur og afhenti þau til sölu í versluninni, en umslögin sjálf kostuðu aðeins 7 krónur, en voru seld á 50 krónur. Á meðan Páll sat og gæddi sér á ís fylgdist hann með umslögunum renna út eins og heitar lummur.
Þegar það komst til afspurnar að ný eyja hafði myndast við Surtsey voru Vestmannaeyjingar ekki á þeim buxunum að einhverjir aðrir yrðu á undan þeim í land. Ungir ofurhugar héldu þá í för í átt að gossvæðinu, því þeir ætluðu ekki að láta neinn annan hafa af Íslendingum þann heiður að vera fyrstir á land eins og gerðist með Surtsey. Þetta voru þeir Páll Helgason, Ragnar Jóhannesson og Bragi og Gísli Steingrímssynir. Þessir ungu menn ætluðu sér að verða fyrstir til að stíga á land á Syrtlingi þegar hann var byrjaður að myndast. Í viðtölum við Pál Helgason í Morgunblaðinu og Þjóðviljanum þann 10. júní 1965 segir Páll frá því þegar hann fór í þessa svaðilför og að hann hafi haft með sér íslenska fánann sem hann hafði falið innanklæða, því hann var ekki viss um viðbrögð félaga sinna gagnvart hugmynd hans um að reka fánann niður á nýju eyjunni Syrtlingi sem tekin var að myndast. Sigldu þeir í kringum eyna í drjúglanga stund á bátnum Jóni Krók sem var í eigu Páls og reyndu að tímasetja gossprengingarnar sem áttu sér stað, en þótti það erfitt þar sem þær voru heldur óreglulegar. Stundum liðu 20 sekúndur á milli hrina, en stundum var biðin allt að 3 mínútum. Tóku þessir vösku peyjar því þá ákvörðun að stíma í áttina að eynni og taka þá áhættu að taka þar land. Páll sagði þá samferðamönnum sínum frá fánanum sem hann bar innanklæða og leist þeim afar vel á þá hugmynd hans að reisa fánann þar. Er þeir voru komnir nógu nálægt eyjunni stöðvuðu þeir bátinn og vatt Páll sér í gúmmíbát sem þeir höfðu með sér. Var gúmmíbáturinn festur í línu og tók Páll að róa bátnum í átt að Syrtlingi eins hratt og hann mögulega gat. Tókst landtakan gífurlega vel, en Páll minnist þess að eyjan hafi öll skolfið og nötrað undir fótum sér, eins og hann stæði ofan á risastórri aflmikilli vél. Tók Páll sig til og stakk niður íslenska fánanum sem hann hafði í för með sér, en ekki vildi svo vel til að fyrsti staðurinn sem hann stakk honum niður á molnaði sífellt í sundur og hélt ekki fánanum. Nú voru góð ráð dýr því eyjan skalf öll og nötraði og næsta sprenging yfirvofandi. Fann Páll loks annan stað sem hann náði að reka fánann niður á svo hann stóð. Ætlunarverki þeirra félaga var lokið, þeim tókst að eigna sér eyjuna fyrir hönd Vestmannaeyjinga og allra Íslendinga. Flýtti Páll sér aftur í gúmmíbátinn en hann hafði rekið frá eyjunni og þurfti hann að vaða út í sjóinn og klifra um borð. Hann gaf merki um að hann væri hólpinn og hófu samferðamenn hans, Bragi, Gísli og Ragnar, að draga bátinn aftur til baka eins hratt og þeir gátu. Samvinna þeirra allra hafði tryggt þetta mikla afrek sem unnið hafði verið að sögn Páls. Varðskipið Þór var staðsett við eldsumbrotin og höfðu skipsverjar fylgst með hetjuför þessara ungu ofurhuga, ásamt Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Guðmundi Í. Guðmundssyni utanríkisráðherra. Þegar Páll var kominn aftur um borð í Jón Krók tóku þeir félagar stefnuna að varðskipinu og fóru um borð. Fengu þeir staðfestingu og miklar þakkir frá skipsverjum, sem og forsætis- og utanríkisráðherrum, fyrir að þeir hefðu verið fyrstir til að nema land á Syrtlingi. Gosið í Syrtlingi stóð frá 22. maí 1965 og byrjaði sem neðansjávargos og því lauk 17. október sama ár og náði eyjan 70 metrum að hæð. Sorglegt er þó að minnast þess að eftir þetta mikla afrek þessara fræknu manna hvarf eyjan í hafið þann 24. október sama ár og fáninn góði með.
Annan í jólum 1965 hófst nýtt gos við Surtsey. Hlaut þetta gossvæði nafnið Jólnir sökum þess að gosið hófst um jólin, en nafnið var einnig viðeigandi þar sem nafn Surtseyjar á rætur sínar að rekja til norrænnar goðafræði en það á Jólnir líka, enda eitt af heitum Óðins. Stækkaði Jólnir og minnkaði á meðan á gosinu stóð og náði loks 570 metra lengd og 62 metra hæð. Enginn annar en Páll Helgason stóð vaktina til að gæta þess að enginn annar en Eyjamaður stigi í fyrsta skiptið á eyjuna. Í bók Ásmundar Friðrikssonar „Strand í gini gígsins“ segir frá því þegar Páll sigldi á bátnum Skutlu í átt að eyjunni ásamt Stefáni bróður sínum til að nema þar land. Tókst þeim að koma bátnum að nýju eyjunni og stíga til jarðar, en þeir lýstu aðstæðum þannig að eyjan væri úr gljúpri og lausri ösku og gátu þeir lítið athafnað sig í sykurmjúkri öskunni. Því stöldruðu þeir ekki lengi við, enda skammt frá þeim geysuðu ógnvænlegar og stórhættulegar goshrynur úr kötlunum tveimur. Eins og áður hefur komið fram þá hófst gosið sem myndaði Jólni í desember 1965, nánar tiltekið þann 26. Eyjan stækkaði og minnkaði á meðan gosinu stóð vegna mikils sjógangs, en það varði allt til 8.–10. ágúst ári síðar. Í lok september 1966 tókst sjónum að gleypa Jólni endanlega.



