Þann 9. September 1913 komu saman 13 ungir menn með því markmiði að stofna saman íþróttafélag. Meðal þessara þrettán ungmenna voru Sigurður Jónsson, Haraldur Eiríksson, Georg Gíslason, Jón Ingileifsson og Gísli Þórðarson og svo varð til að þessir frumkvöðlar stofnuðu Íþróttafélagið Þór. Stofnfundurinn fór fram í Þinghúsinu Borg við Heimagötu 3a og komu sex nöfn til greina áður en nafnið Þór var samþykkt. Var Georg Gíslason kosinn fyrsti formaður félagsins á fundinum. Aðdragandi þess að félagið var stofnað voru íþróttanámskeið sem Guðmundur Sigurjónsson, íþróttakennari úr Reykjavík hafði haldið fyrir ungt fólk í Vestmannaeyjum 1912, en hann hvatti unga fólkið hér í Eyjum til að stofna íþróttafélag.
Félagið lagði mikla áherslu á að efla líkamlegan og andlegan mátt æskulýðs Vestmannaeyja með iðkun hinna ýmsu íþrótta, en einnig lagði félagið áherslu á jafnrétti kynjanna, en strax á stofnfundi var sett inn í 2. Grein laga félagsins að bæði piltar og stúlkur ættu að taka þátt í íþróttastarfi Íþróttafélagsins Þórs. Var þessi framsækna jafnréttissýn félagsins til þess að Þór var leiðandi í kvennaíþróttum á Íslandi. Til að skilja betur hversu stórt og mikilvægt skerf þetta var þurfum við að skoða það í samhengi við hversdagleika kvenna á þessum tíma. Líf flestra kvenna snérist að mestu um lýjandi handavinnu við fiskvinnslu yfir vertíðina og svo heimilishald þess á milli. Á þessum tíma var ekki litið á íþróttir sem tómstundagaman fyrir konur, heldur voru þær lúxus og átti samfélagið erfitt með samþykkja konur þar innan. Fyrstu fimleikabúningarnir sem konur klæddust voru m.a. síðar brækur sem náðu niður fyrir hné en það þótti samt of djarft fyrir eldri kynslóðina því það sást í leggina fyrir neðan kálfa. Stúlkunar mættu á sínar fyrstu æfingar með hárnet og í síðum pilsum yfir fimleikagallanum til að vekja sem minnsta athygli opinberlega. Þó svo að viðhorfið hafi verið frekar neikvætt þá var þarna komið athvarf fyrir konur þar sem þær gátu hrist af sér samfélagslegum hlutverkum sínum og upplifað ákveðið líkamlegt frelsi í gegnum íþróttirnar.
Lítið fór fyrir æfingum kvenna á þessum tíma, en á ársfögnuði félagsins ákvað stjórn Þórs að sýna bæjarbúum afrakstur þessara æfinga og hversu nauðsynlegar kveníþróttir eru. Eyjamenn brugðust vel við fimleikasýningu kvennaflokkanna, en áhorfendur fylltu húsin og fóru foreldrar að hvetja dætur sínar að taka þátt í íþróttstarfi Íþróttafélagsins Þórs. Tókst því félagin vel til við að kynna íþróttastarf kvenna og upphefja virðingu þess um leið. En merkasti áfangi félagsins átti sér stað þann 9. Desember 1929, en þá var opinberlega stofnuð kvennadeild í handbolta. Í kjölfarið á því stofnaði Íþróttafélagið Týr einnig kvennadeild innan handboltans og kepptu liðin margoft, þar til þau voru endanlega sameinuð undir merkjum ÍBV árið 1996.
Allur sá þróttur og kraftur sem settur var í stofnun félagsins sem og uppbygging starfs og stöðu kvenna innan íþrótta hér í Eyjum hefur lagt þann grunn sem hefur svo sannarlega skilað sér því undir merkjum ÍBV hafa Eyjakonur orðið fjórum sinnum Íslandsmeistarar, fjórum sinnum bikarmeistarar, fjórum sinnum deildarmeistarar og unnið meistarakeppni HSÍ fimm sinnum. Við Eyjamenn eigum svo sannarlega kraftmiklar konur og þróttmikla Þórara.



