Á fæðingardegi Ása í Bæ, 27. febrúar, kl. 17, bjóðum við upp á dagskrá í Einarsstofu þar sem áherslan er lögð á rithöfundinn Ása.
Gunnlaugur Ástgeirsson fjallar um föður sinn, rithöfundinn Ása, og Kári Gunnlaugsson og Ástgeir Ólafsson lesa valda kafla úr bókum afa síns.
Eyvindur Ingi Steinarsson og Molarnir flytja nokkrar af ógleymanlegum perlum Ása.
Á sama tíma opnum við sýninguna Ólíkar ásjónur Ása, þar sem málverk, teikningar og ljósmyndir af honum eru dregnar fram auk allra bóka hans.
Kaffi og konfekt.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskráin er styrkt af Menningarsjóði Sparisjóðsins.