Dagskrá:
- Útskrift nemenda Visku og Annríkis í þjóðbúningasaum. Nemendur skarta búningum sínum.
- Sýndir verða búningar úr eigu Annríkis og Sagnheima.
- Íslenskir þjóðbúningar kynntir.
Dagskráin er öllum opin og eru gestir hvattir til að fjölmenna og skarta þjóðbúningum sínum, íslenskum og erlendum.
Á laugardaginn 10. maí verða Guðrún Hildur og Ásmundur frá Annríki í Sagnheimum kl. 13-15. Á þeim tíma geta bæjarbúar komið með gömul klæði og búninga úr kistum sínum og fengið leiðbeiningar.
Allir hjartanlega velkomnir